Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1419, 125. löggjafarþing 652. mál: skattfrelsi forseta Íslands (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 84 23. maí 2000.
I. KAFLI
Breyting á lögum um laun forseta Íslands, nr. 10/1990.
Forsætisráðherra skal skipa nefnd til að endurskoða lög þessi og önnur lög sem kunna að hafa áhrif á kjör forseta Íslands. Meðal annars skal nefndin fjalla um hvort ástæða sé til að breyta fyrirkomulagi á ákvörðun launa forseta Íslands þannig að annar aðili en Kjaradómur úrskurði um þau. Störf nefndarinnar skulu miðast við að nýtt fyrirkomulag geti eftir því sem við á tekið gildi eigi síðar en að loknu kjörtímabilinu 2000–2004, þ.e. 1. ágúst 2004.
II. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 75/1981, með síðari breytingum.
III. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum.
V. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996, með síðari breytingum.
VI. KAFLI
Gildistaka.
Þingskjal 1419, 125. löggjafarþing 652. mál: skattfrelsi forseta Íslands (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 84 23. maí 2000.
Lög um afnám lagaákvæða um skattfrelsi forseta Íslands.
1. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 2. gr. laganna:- Orðin „og er undanþeginn öllum opinberum gjöldum og sköttum“ í 1. mgr. falla brott.
- 2. mgr. fellur brott.
2. gr.
Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Forsætisráðherra skal skipa nefnd til að endurskoða lög þessi og önnur lög sem kunna að hafa áhrif á kjör forseta Íslands. Meðal annars skal nefndin fjalla um hvort ástæða sé til að breyta fyrirkomulagi á ákvörðun launa forseta Íslands þannig að annar aðili en Kjaradómur úrskurði um þau. Störf nefndarinnar skulu miðast við að nýtt fyrirkomulag geti eftir því sem við á tekið gildi eigi síðar en að loknu kjörtímabilinu 2000–2004, þ.e. 1. ágúst 2004.
3. gr.
1. tölul. 4. gr. laganna fellur brott.4. gr.
6. tölul. 28. gr. laganna orðast svo: Hlunnindi forseta Íslands vegna embættisbústaðar og rekstrar hans, risnu og bifreiða eða önnur hlunnindi sem embættinu fylgja.5. gr.
1. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna fellur brott.6. gr.
1. tölul. 1. mgr. 5. gr. laganna fellur brott.7. gr.
Orðin „Forseti Íslands og maki hans“ í 3. mgr. 2. gr. laganna falla brott.8. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. ágúst 2000.Samþykkt á Alþingi 13. maí 2000.